Ört hækkandi hitastig sjávar - Reykjavík eftir 75 ár!
Stökkbreytingar í hækkun meðalhita sjávar hafa orðið frá því í mars á síðasta ári og vísindamenn reyna að átta sig á því hvað veldur. Meðalhiti sjávar er nú 21.09C. Alla daga síðan 4. maí 2023 hefur hitamet verið slegið eins og grafið á myndinni sýnir. Gráu strikin á myndinni eru mælingar frá 1979 (https://climate.copernicus.eu)
Samkvæmt https://www.climate.gov/news þá er gert ráð fyrir að sjávarmál hækki um 2.2m í lok aldarinnar og um tæpa 4 metra árið 2150. Hækkandi hiti eykur rúmmál sjávar auk bráðnunar heimskautanna. Hvernig verður Reykjavík í lok aldarinnar? Sigla barnabörnin á gondólum um miðbæinn?
Dægurmál | Miðvikudagur, 4. desember 2024 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Flestir muna eftir stráknum í Keflavík sem fékk bætur eftir slys og keypti sér hús. Síðan voru fasteignagjöld o.fl. í vanskilum hjá honum ca 3 milljónir. Húsið hans var boðið upp og útgerðarmaður í Sandgerði keypti húsið á 3 milljónir og seldi það fyrir stuttu á 89 milljónir. Ungi maðurinn tapaði 86 milljónum. Þetta er lögleg eignaupptaka og fullkomlega siðlaus.
Nauðungarsala á heimilum fólks á að vera ólögleg þess í stað tekur sýslumaður yfir og setur eignina í venjulega sölu hjá fasteignasala. Þegar eignin selst fær kröfuhafi sitt og eigandi sitt. Annað er siðlaust rán. Hversu margir lentu ekki í þessu eftir bankahrunið. Þessi lög sem leyfa rán á hábjörtum degi er hrægammavæðing hinna ríku því fórnarlömbin eru oftast þeir sem höllum fæti standa.
Ég skora á stjórnmálamenn að breyta lögum og verja eigur fólks og heimili. Það geta verið margvíslegar ástæður fyrir erfiðleikum fólks en fjársterkir aðilar eiga ekki að græða á því.
Dægurmál | Miðvikudagur, 4. desember 2024 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 4. desember 2024
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.12.): 4
- Sl. sólarhring: 221
- Sl. viku: 323
- Frá upphafi: 323
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 257
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar